Olweus - gegn einelti
Opið málþing í Neskirkju og Hagaskóla 22. nóvember kl. 9-16

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir 18. nóvember.

Olweusaráætlunin fagnar áratug á Íslandi. Við viljum líta yfir farinn veg og miðla af reynslu. Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á velferð. Verið öll velkomin.

Við opnum klukkan 8.20 með kaffi og spjalli.

Meðal erinda í sal klukkan 9-12:

„Við höfum gengið til góðs.“ Olweusaráætlunin í áratug.
Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi og
Reidar Thyholdt, framkvæmdastjóri Olweus International.

“Ég held að lífið væri auðveldara ef maður væri strákur.”
Erfið samskipti og einelti stúlkna
Ingibjörg Auðunsdóttir, sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og
Helga Halldórsdóttir, deildarstjóri og meistaranemi.

Unnið verður í málstofum eftir hádegi þar sem til umræðu verða efni tengd erindum sem flutt voru fyrir hádegi auk nýrra viðfangsefna.

Gert ráð fyrir a.m.k. tveimur lotum eftir hádegi.

Í málstofum eftir hádegi, m. a.:

1) Hvað má læra af Olweusarverkefninu?
2) Erfið samskipti og einelti stúlkna: hvað er hægt að gera?
3) Rétt vinnubrögð í eineltismálum.
4) Olweus í leikskóla, framhaldsskóla og fyrirtæki.
5) Olweus og vinaliða- og vinaverkefni  í Skagafirði.
6) Hvernig tökum við á móti nemendum á unglingastigi og í hvaða hlutverki eru foreldrarnir – vesturbær Reykjavíkur
7)  Sáttmáli gegn einelti (í Vestmannaeyjum).
8) “Virkni og þátttaka”

Niðurstöður eineltiskönnunar: kallað eftir tillögum nemenda til úrbóta (í Þelamerkurskóla).

Endanleg dagskrá verður auglýst og send út.

Skráning fer fram á netfangið: torlakur@hi.is

Þátttökugjald er kr. 6000 á þátttakanda utan „Olweusarskóla.“ 3000 kr. á þátttakanda í Olweusarskóla.  Veitingar eru innifaldar í verði.
Þátttökugjald greiðist á reikning Olweusaráætlunarinnar: 0325-26-002080, merkt: Málþing 2013.