FréttirNámskeið
Námskeið

Nokkrir af þátttakendum

Í morgun fór af stað nýtt námskeið fyrir verkefnisstjóra í Olweusarverkefninu. Myndin sýnir nokkra af þátttakendum 10. Verkefnisstjóri er faglegur leiðbeinandi í eineltisverkefninu og mun leiðbeina í einum til fjórum skólum. Kennarar á fyrsta námskeiðnu eru Reidar Thyholdt og André Baraldsnes frá miðstöð Olweusarhópsins í Björgvin; Hemil setrinu. Kennt er í dag, föstudag og morgun, laugardag, en á þessu fyrsta hluta er lagður grunnur að þekkingu verkefnisstjóranna, en námskeiðið heldur síðan áfram í ágúst – og samtals 11 daga á tveimur næstu árum 2004-2006. Verkefnisstjórarnir sem hóðu námið í morgun munu taka að sér að leiðbeina í skólum Reykjavík, í Húnavatnssýslum, á suðurfjörðum Austfjarða, Vestmannaeyjum og af upplandi Suðurlands, Suðurnesjum og í Kraganum.